*Velkomin*

Hrabba

31.10.2006 12:10:01 / hrabba

Pæling...

Er svoltið að spá í að skipta aftur yfir á BlogCentral... er orðin leið á bloggar... hvað á ég að gera? Kv hrabba

» 5 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 23:04:26 / hrabba

Ný síða

http://hrabbabj.bloggar.is er málið í bili;)

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.05.2006 15:14:51 / hrabba

Stjörnumerkin:þ

Ljón (22. júlí - 23. ágúst):
Þú ert eigingjarn og of upptekinn af eigin málum til að hafa áhuga á öðrum. Þú veist allt og hlustar ekki eða öskrar á andmælendur þína. Þú ert svo barnalegur, einlægur og trúgjarn, að það er augljóst að þú hefur aldrei fullorðnast. Þú ert latur, en þegar þú gerir eitthvað, þá gengur þú of langt.
Ætli það sé eitthvað satt í þessu?:$ hehe já ætli ég viti nú ekki upp á mig sökina:^)
En mig langar að endurtaka spurninguna sem ég spurði í seinasta bloggi;)

Ég var að láta taka af mér 3 fæðingabletti í viðbót í gær (er búin að láta taka 4 áður) og það hefur alltaf verið skorið0 Hvernig er þetta, eru þeir ekki stundum teknir með öðrum hættir? frystir eða eitthvað slíkt? ég fékk svo stór ör eftir hina 40 Langar bara að vita um þetta, svoltið forvitin þannig að endilega segið mér hvað þið vitið?

Ps. kíkkiði á þetta: http://hrabbabj.bloggar.is/ og segið mér hvað ykkur finnst;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 16:10:15 / hrabba

Helgin að byrja

Vá hvað það er lítið eftir af skólanum, svona án spaugs... þetta er bara að verða búið! :D:S það eru svona ýmsar blendnar tilfiningar í sambandi við það sko. Bæði léttir og söknuður. Ég held líka að þetta eigi eftir að verða rosalega skrítið:D En hvað er maður svona yfirleitt að fá í útskriftargjöf? er það bara e-ð í búið eða:D

En ég var að láta taka af mér 3 fæðingabletti í viðbót í gær (er búin að láta taka 4 áður) og það hefur alltaf verið skorið:S Hvernig er þetta, eru þeir ekki stundum teknir með öðrum hættir? frystir eða eitthvað slíkt? ég fékk svo stór ör eftir hina 4:S Langar bara að vita um þetta, svoltið forvitin þannig að endilega segið mér hvað þið vitið?

En já núna er ég hérna upp í sófa að gera ekki neitt:) held að þessi helgi fari mest í lærdóm og vinnu! það er sko nó af verkefnum áður en önnin er búin:P þetta er eitt sem ég á ekki eftir að sakna af skólanum:P

Annars held ég að ég hafi lítið að segja í bili... hafiði það gott... bæjó8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.05.2006 00:18:39 / hrabba

gjúggíborg

Ætla rétt að henda inn nokkrum línum hérna... ég var að koma úr vinnunni áðan og er ekki alveg að nenna að fara að sofa:$ Núna eru allir í VMA væntanlega byrjaðir í prófum, gangi ykkur rosa vel og þið eigið alla mína samúð;) veit reyndar ekki hvort að það sé betra að eiga þetta eftir8| væri til í að fá sumarfrí núna á stundinni:!:8) spurning um hvernig sumarið á eftir að vera... ég hef því miður ekkert voðalega góða tilfinningu fyrir því en reyni að vera jákvæð:D ég er alveg komin í djamm gírinn sko þannig að vonandi verður gert nóg af því í sumar... Stelpur við verðum að taka okkur á í þessu;)

En já annars er nú ekki langt í próf og dimmiteringu og óvissuferð og útskrift og allt og VÁ hvað ég hlakka til:D þótt að dimmiteringin hafi valdið ansi miklum rifrildum og móral í bekknum mínum8| en það er held ég all good now... og óvissuferðin verður nottlega bara mega stuð! við stelpurnar ætlum svo að kíkja suður eftir prófin og versla okkur útskriftadress og svona, allavegana ég og adda og svo verður þetta bara svona gelluferð:D

Í sumar er svo stefnan að fara í eina útilegu eins og ár hvert:D svo ætlar Tinni minn að halda party ef við finnum einhvern bústað:$ hehe en talandi um Tinnu, hún var að skrifa snilld um mömmu sína á síðunni sinni: www.blog.central.is/cherrys kíkkið á þetta, bara fyndið sko... Svo er Heiða vöknuð til lífs og farin að blogga aftur;) hehe loksins... En jæja best að hætta nú í bili, lofaði Damma mínum að vera bara í korter í tölvunni en það dróst aðeins;) bara eins og gengur og gerist:klikk: haha

Kvittiði svo, bara 6 komment á seinustu færslu, ef ég á að halda þessu áfram verður það að vera svoltið mikið betra en það:haha:


» 14 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 11:49:39 / hrabba

hæhó

Æji þessir tiltlar eru alltaf svö ömurlegir hjá manni...

En allavegana þá held ég að ég sé svona nokkurnvegin búin að jafna mig á þessari krufningu!:) En það er ekkert smá gott veður úti og mig langar geggjað að gera eitthvað en það eru bara allir uppteknir við e-ð annað:( en ég hlakka geggjað til sumarsins! þetta verður að vera skemmtilegt sumar og djammsumar því ég fer ekkert til útlanda:( mig langar svo að fara e-ð, ég var að skoða myndir frá Tyrklandi og var láta mig dreyma8)


Adda mín:* það var alltaf svo hlýtt á kvöldin líka...mmmm...


Tvær gellur í sjónum, það er alltaf geggjað að vera á ströndinni:D


Kristín og Adda með fishbowl;) góðar minningar!


Fullt af fólki í sjónum, ég þurfti að mana mig lengi í það að stökkva:P


Endum þetta á geggjaðri landslagsmynd;)

Ef þetta fær mann ekki til að langa að fara þá veit ég ekki hvað... ég trúi því ekki að ég sé ekki að fara út í sumar heldur verð bara að vinna og vinna og vinna:( En ég vona nú að við stelpurnar skellum okkur í eina útilegu í sumar:)


Við gellz í útileguni í fyrra:D


My girls í geggjuðu veðri í Hallormstaðaskó:*

En jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra, ætla að fara að finna einhvern til að leika við því mér leiðist:( bæjó... og halló, koma svo, kvitta;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 20:11:52 / hrabba

Ulllabí!!

ÚFFFF ég var að gera hrylling í dag og held að ég sé andlega sködduð af því! ég var að KRYFJA AUGA!!! úr hrossi! vá hvað þetta er örugglega eitt af því ógeðslegasta og viðbjóðslegasta sem ég hef gert! fyrst fengum við augað og það voru bara svona hárin í kring og augnhár og alles og aftaná voru bara vöðvar og fita og já þetta þurfti ég að krafla á með mínum eigin höndum og skera þetta og klippa og allan fjandann! Ok mér fannst nógu slæmt að kryfja ánamaðka en þetta var verra!! svo var alveg hryllilegur smellur af þessu öllu saman... já ég er enn að ná mér hérna:P

Annars er búið að vera mjög svo breytilegt veður í dag, sól og gúddí í morgun og svo bara snjókoma og kuldi og svo rigning og ég veit ekki hvað og hvað... hvað er að gerast hérna... en svo á nú að koma bongóblíða á fös og aldrei að vita nema maður reyni að gera eitthvað skemmtilegt þá:D er ekki VMA að dimmitera þá? fáið þokkalegt veður mar...

En já það er ekkert smá stutt í að við förum að útskrifast... maður er orðinn svo gamall... allir á manns aldri farnir að verða óléttir og trúlofast og alles.. reyndar  held ég að trúlofunarbylgjan sé gengin yfir, allavegana hefur maður ekki frétt af neinu nýlega en það eru allir að fara að eignast barn:) en það er bara gaman að því :D ekkert smá krúttlegt! en maður áttar sig bara á þvi hvað maður er að verða gamall:P  en jæja ég þarf að fara að gera eitthvað í vinnunni:$ Kvitta fólk;)

Hrabba:evil:


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.04.2006 14:23:19 / hrabba

Prufa eitthvað nýtt hérna:D

Já ég veit ekki hvernig þetta á eftir að reynast en um að gera að prufa;) ég kann samt ekkert á þetta þannig að ég verð að reyna að fikra mig eitthvað áfram hérna. Ég er ekki alveg búin að ákveða hvort ég ætli að nota þetta frekar en þetta virðist nokkuð kúl.
Annars bara allt ágætt að frétta. Ég er búin með 5 af 10 bls. í blessuðu lyfjafræði ritgerðinni minni. Á morgun ætlar svo mamma að hjálpa mér meira með þetta:) Svo núna er ég að fara að gera kynningu á Sólborgarmálinu í Þistilfirði fyrir sögu, spennó;)
Svo fer nú að líða að útskrift má segjað... vá hvað tíminn líður hratt! ég og mamma vorum að tala um þetta um daginn, hverjum verður boðið og svona og já það er alveg slatti af fólki sem þarf að bjóða!
En út í annað MIG LANGAR SVOOOOO í nýja myndavél!!!! mín er notlega ónít og það er svo ömurlegt að geta ekki tekið neinar myndir:(
En já komiði með skemmtileg komment folks, annars bara hreinlega nenni ég þessu EKKI!!!!
Kv Hrabba

ps Gleðilegt sumar!:D8)


» 15 hafa sagt sína skoðun

17.04.2006 18:32:55 / hrabba

Gleðilega páska!

Vonandi hafa allir fengið að minnsta kosti 1 páskaegg;) ég er nú ekki búin að vera sú duglegasta í að skrifa hérna, ég hef bara ekki nennt því... en allavegana það sem ég er búin að gera þessa páska er:

  • Vera veik í viku (og rúmlega það)
  • Lesa Harry Potter
  • Horfa á video
  • Fara í fjallið á bretti (loksins!)
  • Vera með ástinni minni:*
  • Fara í bíó á Ice Age (snilld)
  • Og gera ekki neitt

úff ég á líka eftir að skrifa 10 bls ritgerð um lyf fyrir lyfjafræði sem ég er ekki byrjuð á, ég á að skila henni eftir páska:S:S:S oó! úff það verður fínt þegar skólinn er búinn og ég get hætt að hafa áhyggjur af verkefnum og prófum. Ég er strax orðin stressuð fyrir prófunum8| En jæja ég ætla að halda áfram að gera mest lítið, horfa á imbann og svona:P bæjó

P.s. kvitta!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

07.04.2006 11:46:21 / hrabba

Páskafrí

Jæja loksins komið langþráð páskafrí...JIBBÍ... Planið hefur verið að fara í fjallið og vera dugleg í því! og svo slaka á og læra svoltið... ég var sko veik alla seinustu páska með hita og hor!! og hvað haldiði ég byrjaði að fá hita í gær!!!!!! og er með hita núna:S þannig að ég efast um að planið mitt takist nema kannski slaka á.. ég vona samt að þetta verði ekki lengi í mér... hef lítinn áhuga á að vera veik í fríinu mínu:!: ég ætla mér að fara e-ð uppí fjall!!

Svo vill ég óska öllum MA ingum með glæsilegann sigur í Gettu betur!:D sáuið samt hvað spyrillinn hélt með Versló! Eruði að grínast!

Annars er lítið annað að frétta... hitti stelpurnar í gær og svona og það var geggjað gaman eins og alltaf:D

En allavegana veriði dugleg að kvitta hjá mér og svona:*

Hrabba lasna:S


» 11 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 18:48:12 / hrabba

Hugshugs

Já ég er mikið búin að spá hvað mig langar að gera eftir skólann. Ég nenni allavegana ekki að fara beinnt í háskóla, það er alveg ljóst! Það er 2. sem mig langar virkilega að gera og ætla mér að gera.

Ég ætla í fyrsta lagi að fara í enskuskóla í svona 2-3 mánuði. Ég veit ekki alveg hvert eða með hverju en er að spá í að fara eftir næstu áramót:) Viljiði benda mér á góða staði, ég veit um Möltu en langar að vita hvort eitthvað annað jafnvel betra sé í boði? Og hver vill koma með mér, stelpur, Damian?? einhveR?

Það sem ég ætla líka að gera er að fara í Interrail en því þori ég reyndar ekki ein og ég veit ekki alveg hvenær það er besti tíminn til að gera það. Mér finnst bara svo geggjað heillandi að fara og skoða Evprópu svona:) Og hver vill koma með mér í það??;)

Ég er búin að vera að hugsa þetta mikið og er alveg ákveðin að ég ætla að gera þetta;)

En ég á helst að vera að vinna í íþróttaverkefni núna (boring) þannig að ég ætti að hætta þessu hangsi;) endilega komiði með einhverjar hugmyndir með þessar ferðir mínar og ef einhver sem er að lesa hefur prufað þetta endilega segið mér hvernig var;) bleble

Hrabba


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 14:28:30 / hrabba

Ég er alltof dugleg í þessu bloggi

Skil nú stundum ekki til hvers maður gerir  þetta, en einhverja hluta vegna heldur maður áfram að skrifa eitthvað ómerkilegt bull sem enginn nennir að lesa:$

En fréttir, ég er að taka tennur! já gaman að því... þetta rifjar samt upp gamla tíma þegar maður missti þær og svo fann maður svona broddana koma upp...

En á lau héldum við staffaparty og það var bara geggjað gaman... Vorum nú samt ekki margar en náðum að skemmta okkur þokkalega:D Hvað er samt AÐ fólki sem segir já ég kem og mætir svo ekki og lætur ekki kóng né prest vita! þetta er ekki í fyrsta skiptið sko, segja bara NEI ég mæti ekki og ef e-ð kemur uppá þá er ekki erfitt að hringja og láta vita takk... En Tottli Hauks mætti og fólk lofaði upp í ermina á sér og sumir voru aðeins "flottari" en aðrir með græna spöng um ennið á sér... hehe

En svo á sun er það fjallið með öddu:D:D jibbí!!!!

Kvitta svo fólk


» 11 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 15:55:54 / hrabba

Hola

Páskafrí eftir næstu viku, hversu ljúft verður það?!?;) mjög ljúft held ég... ég er bara að vinna núna en hef svosem ekki mikið að segja... langar bara að bulla einhverju hérna inn...

Ætla mér að kíkja e-ð út á djammið í kvöld8) annaðhvort staffaparty eða bekkjarparty??? ég veit ekki alveg... er nebblega að vinna til 12 þannig að það er tæpt að ég komist í bæði:$ en þetta kemur allt í ljós;)

Það hættir ekki að snjóa, sem er svosem gott mál ef það þíðir að ég komist upp í fjall fljótlega.. vá hvað ég er að missa mig mig langar svo að fara! Er ekki e-h til í að koma með mér bara í vikunni?? Adda hvað segiru ertu game?? ;)

En jæja það var nú ekki meira í bili, fariði að kvitta þarna pungarnir ykkar, þetta er ekki að gera sig;) annars hætti ég bara og ég meina það!:klikk:


» 9 hafa sagt sína skoðun

31.03.2006 13:59:58 / hrabba

Myndir

Fullt af myndum síðan á feggó á: http://netframkollun.pedromyndir.is/myndir/ 

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 23:25:22 / hrabba

Maður er svo virkur í þessu

Snjór snjór snjór, mig langar að fara að drífa mig uppí fjall:D enda ætla ég að draga Öddu með mér bráðlega á bretti...

en mig langar líka að:

  • Vera búin með skólann (það styttist í það)
  • Fara á einhvern tropical stað þar sem ég get legið í sólinni og látið þjóna mér með Damian eða my girls:)
  • Fara í enskuskóla
  • Vera geggjað slim og flott
  • Eiga lots of money
  • Eiga lots of geggjuðum clothes
  • Og alveg margt fleira sko:)

Vá hvað ég er samt hrædd við sjóinn og það sem er í honum, sérstaklega hákarla. Ég var að horfa á Into the blue áðan og þar eru þau alltaf að kafa í sjónum og allt fullt af hákörlum og ég fékk bara í magann sko:P en svo var líka allt geggjað fallegt og flott og þau líka...grrr ég vildi hafa svona body eins og Jessica Alba;)

Vá hvað það var samt fyndið að keyra um göturnar núna, maður hossast allur til og frá.
Æji hvað lítil börn geta vera SÆT! sérstaklega þegar þau hlæja svona krúttlega!:D geta verið algjörar rúslur!

En ég ætla að enda með að sýna ykkur geggjað krípí mynd af mér, viljiði sjá augun! ojj bara

C ya, Hrabba með ógeðisaugun:|

p.s. kvitt er skilda og takiði endilega þátt í nýju skoðanakönnunninni... vúhú...


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 14
Klukkan
Dagsetning
22. mars 2010